Beint á leiðarkerfi vefsins

Félag íslenskra heilbrigðisritara

Félag íslenskra heilbrigðisritara

Félag heilbrigðisritara er fagfélag sem var stofnað 31. maí 2005. Félagið stendur fyrir opnum fundum fyrir félagsmenn og vinnur að bættum hagsmunum þeirra, bæði hvað varða menntun og kjör. 


22. Febrúar 2010

Helga Braga á skemmtifundi

FHR_HelgaBraga_1Skemmtifundur var haldin mánudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Helga Braga leikkona kom á fundinn og var með uppistand sem fór afskaplega vel fram og við mikinn fögnuð okkar kvennanna. Hún kenndi okkur tilþrif í magadansi sem við stóðum okkur vel í að hennar sögn og víst er að fundarmenn fóru glaðir heim að loknu kaffi og góðgæti.

Næsti fundur er aðalfundur sem verður í 15. apríl 2010, nánar um það síðar.

27. Janúar 2010

Fyrirlestri Sigursteins Mássonar frestað til 4. feb.

Vegna leiks Íslands og Noregs í EM í handknattleik hefur verið ákveðið að fresta fyrirlestri Sigursteins Mássonar, formanns Geðhjálpar, um andlega sjálfsvörn sem halda átti í BSRB húsinu kl. 16 á morgun. Fyrirlesturinn verður fimmtudaginn 4. febrúar kl. 16 og er hann í boði BSRB.

21. Janúar 2010

Fundað með heilbrigðisráðherra um löggildingu starfsheitis

Í gær fundaði Guðríður Guðbjartsdóttir, formaður FHR, Svava Haraldsdóttir, gjaldkeri SFR, og Jóhanna Þórdórsdóttir, fræðslustjóri SFR, með Álfheiði Ingadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um fyrirliggjandi beiðni FHR um að starfsheitið heilbrigðisritari verði lögverndað.


Til félagsmanna

21. Janúar 2010

Laus orlofshús um helgina

Langar þig í bústað um helgina. Enn eru óleigð hús í Munaðarnesi, Vaðnesi, á Mývatni og Arnarstapa. Nánari upplýsingar á bókunarvef.

16. Desember 2009

Jólaball SFR

Hið árlega jólaball SFR og St.Rv. verður haldið þriðjudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hægt er að kaupa miða á skrifstofu SFR. Miðinn kostar 600 kr., sem er sama verð og í fyrra.

9. Nóvember 2009

Afmælishátíð SFR

SFR býður félagsmönnum sínum og fölskyldum þeirra á glæsilega afmælishátíð í Háskólabíói laugardaginn 21. nóvember næstkomandi kl. 15:00, í tilefni af 70 ár afmæli félagsins. Á dagskránni verða fjölbreytt atriði fyrir alla fjölskylduna. Miða þarf að sækja á skrifstofu félagsins fyrir 19. nóvember.


Þú ert gestur nr. 9424 á vef Félags íslenskra heilbrigðisritara síðan 9.4.2008.

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English