Félag heilbrigðisritara er fagfélag sem var stofnað 31. maí 2005. Félagið stendur fyrir opnum fundum fyrir félagsmenn og vinnur að bættum hagsmunum þeirra, bæði hvað varða menntun og kjör. 


11. maí 2012

Trúnađarmannaráđsfundur SFR-"Ađ starfa í ţjónustu hins opinbera

Trúnaðarmannaráðsfundur SFR, föstudaginn 27.4.2012, kl. 13 – 16, Grettisgötu 89, 1. hæð.


Fundarstjóri: Árni Stefán Jónsson s
Fundarritari: Alma Lísa Jóhannsdóttir


Í upphafi fundar ítrekaði fundarstjóri það við trúnaðarmenn að mikilvægt er að skrá sig á Fræðslumorgunn trúnaðarmanna. Ástæða þessa er að eldhúsið verður að hafa yfirsýn yfir réttan fjölda í hádegismat.


1. 43. BSRB þing. Árni St. Jónsson formaður SFR.


Næsta BSRB þing verður haldið 10. – 12. október næstkomandi á Hótel Nordica Hilton. SFR á, á bilinu
56 – 58 fulltrúa. Samanlagt eru fulltrúar um 240 talsins.


Á þinginu verða ýmis mál til umræðu, þ.a.m. nýjar tillögur um skipulag BSRB og breyttar reglur um aðildargjald til BSRB. Til stendur að vinna að varanlegu stefnumótunarplaggi BSRB og að fækka ályktunum en unnið verður á hringborðum. Síðan hafa félögin möguleika á að leggja fram mál.

Kosið var í uppstillingarnefnd vegna vals SFR á fulltrúum á þingið. Í nefndina voru kjörnir: Fyrir hönd stjórnar SFR; Védís Guðjónsdóttir. Úr hópi trúnaðarmanna; Salvör Sigríður Jónsdóttir og Magnús Geir Sigurgeirsson.


Nánari upplýsingar um efni BSRB þings má sjá í glærum Árna frá fundinum.

18. apríl 2012

Ráđstefnu/námsstefnu/kynnisferđ til Glasgow

Stjórn FHR  hitti stjórn læknaritara í gær og tókst  fundurinn með ágætum.  Niðurstaða fundar var að félögin gerðu eitthvað skemmtilegt að hausti og ákveðið var að skella sér til Glasgow og er búið að láta taka frá flug 1. - 4. nóvember verið er að kanna hótel og kostnað almennt. Hægt er að sækja um  úr starfsmenntunarsjóði SFR (sjá úthlutunarreglur á  heimasíðu SFR).

19. mars 2012

Ađalfundur FHR sem haldin var 15. mars 2012

DSC00138

Aðalfundur FHR var haldinn 15. mars sl. Tvær gengu úr stjórninni á aðalfundinum þær Elísabet Kristjánsdóttir og Ástríður Jensdóttir. Í stjórn félagsins sitja: Guðríður Guðbjartsdóttir formaður, Anna María Sampsted varaformaður, Lovísa Guðmundsdóttir ritari, Sigríður Ástvaldsdóttir meðstjórnandi, Braghildur S. Matthíasdóttir meðstj., Ingveldur R. Arnmundsdóttir meðstj. og Íris E. Jónsdóttir meðstj.

5. mars 2012

Dagskrá alţjóđlegs baráttudags kvenna fyrir friđi og jafnrétti

Að venju er boðið upp á spennandi dagskrá þann 8. mars næstkomandi í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Menningar- og friðarsamtök kvenna verða að þessu sinni með opinn fund í Iðnó - Vorið kallar - sem hefst kl. 17. Þá blæs hreyfing launamanna til fundar í hádeginu á Grand Hótel og hefst fundur þar kl. 11:45 og er yfirskrift hans STARFSLOK - Endastöð eða nýtt upphaf? Konur á barmi starfsloka.


Til félagsmanna

5. janúar 2012

Skráning hafin á starfslokanámskeiđ BSRB

Starfslokanámskeið BSRB verður haldið 31. jan. og 2. feb. næstkomandi. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hér.

Nánar »

28. desember 2011

Jólaball SFR 29. desember

jolasveinnjolaball
Jólaball SFR verður haldið í samstarfi við St.Rv. fim. 29. des. 2011, kl. 17 í Gullhömrum, Grafarholti. Miðar eru seldir á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89, opið 9-16. Miðaverð er 700 kr.

Nánar »

13. október 2011

1, 2, 3 og BINGÓ

Laugardaginn 15. október kl. 14 verður Bingó fyrir alla félagsmenn SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að Grettisgötu 89 á 1 hæð. Glæsilegir vinningar - allir geta spilað. Öll fjölskyldan velkomin meðan húsrúm leyfir. Spjaldið kostar 250 krónur.


Ţú ert gestur nr. 15559 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré English