Fréttir heilbrigđisritarar
lorem ipsum dolor
31. janúar 2012
Ađalfundur FHR 2012
Aðalfundur FHR verður haldinn að Grettisgötu 89, fimmtudaginn 15. mars kl. 17: 00
13. desember 2011
Myndir frá jólafundinum

Notaleg jólastemming var á jólafundi félagsins sem haldinn var 19. nóvember eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
13. október 2011
Lesiđ vandlega - Jólafundurinn
Jólafundurinn verður laugardaginn 19.11.2011 kl.12:00 á hádegi. Vinsamlegast hafið samband við sigridas@lsh.is og látið vita hvort áhugi er fyrir hendi að mæta á jólafundinn þannig ef næg þátttaka fæst er hægt að panta húsnæði og mat. Bara að senda tölvupóst og segja ég mæti á jólafundinn.
Með kveðju, stjórn FHR
12. október 2011
Októberfundur FHR
Októberfundur FHR verður haldinn að Grettisgötu 89, mánudaginn 17.okt. kl. 19:30. Gestur fundarins er Áslaug Kristjánsdóttir geðhjúkrunar –og kynfræðingur. Endilega takið með ykkur gesti. Inngangeyrir 500 kr. Kaffiveitingar.
Stjórn FHR hlakkar til að sjá ykkur og gesti ykkar á októberfundinum.
Kveðja, fh, stjórnar GG.
13. september 2011
Velheppnuđ haustferđ suđur međ sjó
Þann 10. september sl. fór Félag heilbrigðisritara í haustferð suður með sjó og var lagt af stað frá Hafnarfirði með rútu kl 14:30. Ferðin heppnaðist þvílíkt vel. Veðrið var frábært og Reynir Sveinsson leiðsögumaður var mjög fróður og skemmtilegur.
Ótrúlegt hvað hægt var að fræðast um lítið bæjarfélag, jafnt um það gamla og það nýja. Kirkjan í Hvalsnesi er með fallegri kirkjum og þar áttum við notalega stund á meðan Reynir sagði frá veru sr. Hallgríms Péturssonar í Hvalsnesi en þar þjónaði hann áður en hann fór að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Einnig var skemmtilegt Gallerý heimsótt þar sem var mikið af fallegum hlutum til sölu. Enda mikið skoðað og keypt.
14. júní 2011
Haustferđ suđur međ sjó
Félag heilbrigðisritara stendur fyrir haustferð suður með sjó þann 10. september næstkomandi. Takið daginn frá og skráið ykkur með því að senda tölvupóst á sigridas@landspitali.is eigi síðar en 1. ágúst nk.
Lagt verður af stað frá A. Hansen í Hafnarfirði um kl. 14:15 og ekið til Sandgerðis. Þar mun Reynir Sveinsson leiðsögumaður hoppa upp í rútuna og segja frá sögu Hvalsneskirkju sem var byggð 1887 (ein af fáum steinkirkjum landsins) og veru Séra Hallgríms Péturssonar þar. Síðan verður ekið að Stafnesi en þar voru mikil sjóslys fyrr á öldum. Á leiðinni til baka í Sandgerði ... Ferðinni lýkur með sameiginlegu borðhaldi um kl: 17:30 á veitingastaðnum A Hansen í Hafnarfirði. Kostnaður kr. 2.500.-, mismunur niðurgreiddur af félaginu. Innifalið í ferðinni er rútan, leiðsögnin og aðalréttur á tilboðsmatseðli A Hansen.
Mynd: Binna Gumm, Hvalneskirkja byggð 1887, ein af fáu steinkirkjum landsins.
19. apríl 2011
Áskorun til ráđherra og heilbrigđisnefndar alţingis
- Heilbrigðisritarar verði löggilt heilbrigðisstétt
Aðalfundur FHR, sem haldinn var 11. apríl sl., samþykkti ályktun sem byggir á umsögn FHR um frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn. Þar er því fagnað að sett verði sérstök lög um heilbrigðisstarfsmenn. Varðandi 3. grein þar sem talið er upp hverjar skulu teljast löggiltar heilbrigðisstéttir þá eru heilbrigðisritarar ekki þar á meðal. Heilbrigðisritarar hafa í mörg ár farið fram á að fá löggildingu á starfsheiti sínu en ekki fengið svör sem skyldi.
Félag heilbrigðisritara ítrekar hér með að það er nauðsynlegt að þessi starfsstétt fái löggildingu og viðurkenningu frá hinu opinbera. Enda er það í samræmi við 1. gr. laganna þar sem segir: „Markmið laga þessara er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra.“
15. apríl 2011
Orlofsmál-laust hús í Vađnesi og íbúđ í Eyjum komin í leigu
Íbúðin í Vestmannaeyjum er komin í dagleigu frá og með deginum í dag, þar gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær. Svo er laust hús í Vaðnesi um helgina, svo nú er um að gera að kíkja á bókunarvefinn.
31. mars 2011
Ađalfundur FHR 11. apríl kl. 16:30
Aðalfundur FHR verður haldinn mánudaginn 11. apríl kl. 16:30 að Grettisgötu 89, 1. hæð. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
2. mars 2011
Merki félagsins til sölu
Nú er hægt að kaupa merki félagsins til að festa í barminn og kostar það kr. 1.000.-. Það er Elísabet Kristjánsdóttir, gjaldkeri FHR, sem sér um söluna og hægt er að hringja í hana í síma 696-2912, eða senda henni tölvupóst á elisabek@landspitali.is.










