Fréttir heilbrigđisritarar
lorem ipsum dolor
4. nóvember 2008
Opinn fundur - Skuldirnar og heimilin - Hvađ er ađ gerast?
Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu, Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Framsögu hafa ...
14. október 2008
Vinnuverndarstarf á óvissutímum - mikilvćgi forvarna
Vinnueftirlitið og Rannsóknastofa í vinnuvernd benda á að þau efnahagslegu áföll sem nú dynja á íslensku þjóðinni komi við okkur öll og hafi áhrif á líðan okkar. Þær aðstæður sem nú hafa skapast gera að verkum að áhyggjur okkar beinast að mörgum þáttum og áhyggjurnar eru með okkur hvort sem við erum heima eða í vinnunni. Mikilvægt sé að vinna að forvörnum og stuðla að góðu og uppörvandi andrúmslofti með jákvæðum samskiptum.
11. september 2008
Launamunur kynjanna eykst um 3% milli ára!
SFR birtir í annað sinn launakönnun félagsins meðal félagsmanna SFR. Launakönnunin miðaðist við 1. febrúar 2008. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og mögulegt er nú í fyrsta sinn að gera samanburð á milli ára á launaþróun félagsmanna SFR. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að launamuni kynjanna sem eykst um 3% milli ára. Grunnlaun félagsmanna SFR hafa hækkað um 14% og heildarlaun hafa hækkað um 11% á milli áranna 2007 og 2008. Á sama tíma hefur launavísitala Hagstofunnar fyrir opinbera starfsmenn hækkað um 6,1%. Hækkunin hjá félagsmönnum SFR er því töluvert meiri en almennt hjá opinberum starfsmönnum á tímabilinu.
13. júní 2008
Greitt samkvćmt nýjum kjarasamningi um nćstu mánađarmót
Greitt verður samkvæmt nýsamþykktum kjarasamningi SFR og ríkisins um næstu mánaðarmót. Greiðslan verður afturvirk til 1. maí en gildistími samningsins er 1. maí 2008 til 31. mars 2009. Mánaðarlaun hækka því um 20.300 kr. Sjá nýja launatöflu.
6. júní 2008
Útskrift heilbrigđisritara úr Fjölbrautarskólanum viđ Ármúla
Föstudaginn 23. maí síðastliðinn útskrifuðust fimm heilbrigðisritarar úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla. Þær Auður Matthíasdóttir og Svava Haraldsdóttir færðu þeim blóm frá Félagi heilbrigðisritara.
5. júní 2008
Rafrćn atkvćđagreiđsla um kjarasamning hafin
Rafræn atkvæðagreiðslu um kjarasamning SFR við ríkið hófst í dag kl. 9 og lýkur 12. júní kl. 16. Öllum félagsmönnum, sem þessi samningur nær til, hefur verið sendur bréfapóstur með lykil-orði og leiðbeiningum um rafræna atkvæða-greiðslu ásamt samningnum. Við hvetjum alla félagsmenn að nýta atkvæðisrétt sinn!
29. maí 2008
Kynning á kjarasamningi
Í næstu viku verða haldnir fundir um allt land til að kynna nýgerðan samning BSRB við ríkið, bæði verða sameiginlegir fundir með BSRB aðildarfélögunum og sérstakar kynningar á stærri vinnustöðum SFR.
27. maí 2008
Kynning kjarasamnings undirbúin
Nú stendur yfir skipulagning á því hvernig nýundirritaður kjarasamningur verður kynntur fyrir félagsmönnum. Haldnar verða sameiginlegar kynningar á vegum BSRB út um allt land og verður listi yfir tíma og staðsetningar birtur í vikunni. Einnig mun SFR heimsækja stærri vinnustaði og vera með kynningu og listi yfir það verður einnig birtur í lok vikunnar.
Ţú ert gestur nr. 15559 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.










