Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir heilbrigđisritarar

lorem ipsum dolor

1. desember 2009

SFR, St.Rv, SLFÍ og Efling fundar međ trúnađarmönnum á LSH

fundur 30 nov 2009Í gær héldu SFR-stéttarfélag, Starfsmannafélag Reykjavíkur, Sjúkraliðafélag Íslands og Efling, sameiginlegan fund með trúnaðarmönnum félaganna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Í starfsumhverfi félagsmanna þessara félaga hafa orðið miklar breytingar að undanförnu og meiri breytingar eru boðaðar. Markmiðið með fundinum var að fá upplýsingar beint frá trúnaðarmönnum um hvernig ástandið væri í þeirra vinnuumhverfi og hvað þeir sæju gerast í nánustu framtíð.

24. ágúst 2009

Fjölbreytt námsframbođ hjá Framvegis

Út er kominn bæklingur frá Framvegis - miðstöð um símenntun, þar sem kynnt er fræðsla og námsframboð vetrarins. Þar má finna margvíslegt starfstengt nám, allt frá styttri námskeiðum í tölvufærni og viðtals- og samskiptatækni til lengri námskeiða fyrir stuðningsfulltrúa og félagsliða, svo eitthvað sé nefnt. Framvegis býður einnig upp á fjarnám og viðtal við náms- og starfsráðgjafa ef óskað er. Bæklinginn má nálgast hér eða á heimasíðu Framvegis. www.framvegis.is

19. ágúst 2009

Námskeiđ hjá Frćđslusetrinu Starfsmennt

Þessa dagana standa yfir skráningar í námskeið á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar og Námsvísir haustannar verður borinn út næstu dagana. Starfsmenn og stjórnendur geta valið úr afar fjölbreyttu námsframboði sem ýmist er ætlað einstaka starfsstéttum, stofnunum eða opið öllum. Í Veffréttabréfi Starfsmenntar og á heimasíðu þeirra má sjá lýsingar á námskeiðum haustsins.

24. apríl 2009

Kórćfing BSRB kórsins

Eins og glöggir menn og konur muna þá var nýlega stofnaður BSRB kór, opinn öllum félagsmönnum aðildarfélaganna. Kóræfingar munu verða á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 en vegna sumardagsins fyrsta og fleiri slíkra frídaga var ákveðið að skella upp aukaæfingu á þriðjudagskvöldið næsta, 28. apríl, kl. 20:00. Allir söngelskir í BSRB eru hvattir til að mæta. Kórstjóri er Svava Kristín Ingólfsdóttir. Nánari upplýsingar veitir Sólveig solveig@sfr.is og Guðmundur Garðar gumgar@simnet.is

14. apríl 2009

Söngelsk í BSRB sameinumst!

KorÁkveðið hefur verið að stofna kór BSRB félaga. Um verður að ræða blandaðan kór og stjórnandi verður Svava Kristín Ingólfsdóttir. Fyrsta æfing nýja kórsins verður fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00, Grettisgötu 89, 1. hæð.
Allir félagar í aðildarfélögum BSRB eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Garðar, s. 869-8110 eða gumgar@simnet.is og Sólveig solveig@sfr.is.

20. mars 2009

Ársskýrsla SFR komin út

SFR blad 3tbl 2009  Arsskyrsla

Ársskýrsla SFR er komin út og hefur verið dreift til félagsmanna. Í ársskýrslunni er starfsemi SFR á tímabilinu 2008-2009 rakin í máli og myndum.

Ţú ert gestur nr. 15559 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré English