Fréttir heilbrigđisritarar
lorem ipsum dolor
17. nóvember 2010
Söngur FHR tekin upp í stúdíó
Búið er að taka upp í stúdíó söng heilbrigðisritara sem var frumfluttur á fimm ára afmælishátið Félags heilbrigðisritara í apríl sl. Heiðurinn að lagi og söng á Íris Edda Jónasdóttir, heilbrigðisritari á Landspítala, og textann samdi Guðríður Guðbjartsdóttir, formaður Félags heilbrigðisritara. Lagið má sækja hér á mp3-formi.
12. nóvember 2010
Jólafundur 27. nóvember - Skráning á annasam@lsh.is
Jólafundurinn verður haldinn laugardaginn 27. nóvember 2010, kl. 12:00, í Laugardalnum (hús íslenskrar getspár). Allir koma með jólapakka fyrir u.þ.b. 500 kr. sem verða settir í jólapoka. Hádegishlaðborðið kostar kr. 2.200 sem er sama verð og í fyrra. Vinsamlegast tilkynnið þáttöku til Önnu Maríu á netfangið annasam@lsh.is.
Stjórnin biður ykkur, kæru félagskonur, vinsamlegast að kanna hvort þær konur sem hafa verið vinna með ykkur og eru hættar störfum hafi ekki netfang/„e-mail“ heima. Okkur þykir leitt að missa tengsl við þær þar sem samskiptin fara svo mikið fram á netinu. Sendið upplýsingar á netfangið sigog@lsh.is.
Fjölmennum á jólafundinn. Sýnum samstöðu.
3. nóvember 2010
Söngur heilbrigđisritara
Á fimm ára afmælishátið Félags heilbrigðisritara í apríl sl. var frumfluttur söngur heilbrigðisritara en heiðurinn að lagi og söng á Íris Edda Jónasdóttir, heilbrigðisritari á deild 14E Landspítala, og textann samdi Guðríður Guðbjartsdóttir, heilbrigðisritari á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, en hún er jafnframt formaður Félags heilbrigðisritara.
10. september 2010
Ţórhallur miđill mćtir á skemmtifund
31. maí 2010
Sala hótelmiđa hefst 1. júní
28. maí 2010
Kýst ţú utankjörstađar og horfir á Evrovision í orlofshúsi?
27. maí 2010
Fjallgöngur á vegum SFR - skráning
Í sumar býður SFR félögum sínum í fyrsta sinn að taka þátt í skemmtilegum göngum um hálendi Íslands, bæði er um að ræða dagsferðir og einnig lengri ferð (4 daga). Gengið verður með vönum leiðsögumönnum frá Útivist og Ferðafélagi Íslands, en ferðirnar eru skipulagðar í samvinnu við félögin. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig en skráning fer fram hér á vefnum.
29. apríl 2010
Afmćlisfundur FHR 15. apríl 2010
Aðalfundur FHR var haldinn 15. apríl s.l. og var mjög vel sóttur af félagsmönnum. Á fund-inum var stofnanda félagsins og frumkvöðli þess, Sigríði Valgerði Ingimarsdóttur heiðursfélaga, færðar þakkir undir dynjandi lófataki. Eftir fundinn var haldið upp á 5 ára afmæli FHR með tónlistaratriði trúbadorsins Halla Reynis. Formaður SFR, Árni Stefán Jónsson, færði félaginu blóm og árnaðaróskir og óskaði afmælisbarninu velfarnaðar í framtíðinni.
22. febrúar 2010
Helga Braga á skemmtifundi
Skemmtifundur var haldin mánudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Helga Braga leikkona kom á fundinn og var með uppistand sem fór afskaplega vel fram og við mikinn fögnuð okkar kvennanna. Hún kenndi okkur tilþrif í magadansi sem við stóðum okkur vel í að hennar sögn og víst er að fundarmenn fóru glaðir heim að loknu kaffi og góðgæti.
Næsti fundur er aðalfundur sem verður í 15. apríl 2010, nánar um það síðar.










