Fréttir heilbrigðisritarar
19. apríl 2011
Áskorun til ráðherra og heilbrigðisnefndar alþingis
Aðalfundur FHR, sem haldinn var 11. apríl sl., samþykkti ályktun sem byggir á umsögn um frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn.
Ályktun aðalfundar Félags heilbrigðisritara 11.04.2011
Á aðalfundi Félags heilbrigðisritara 11. apríl 2011 er því fagnað að sett verði sérstök lög um heilbrigðisstarfsmenn. Það er af hinu góða að í frumvarpinu séu ákvæði um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna.
Varðandi þriðju grein, um hverjar skulu teljast löggiltar heilbrigðisstéttir, skal tekið fram að ein af þeim starfsstéttum, sem ekki hafa fengið löggildingu sem heilbrigðisstétt, eru heilbrigðisritarar. Er þar um að ræða skilgreinda fagstétt sem starfar innan heilbrigðiskerfisins.
Félag heilbrigðisritara vekur athygli á að heilbrigðisritari er andlit hverrar stofnunar, fyrsti aðili sem sjúklingar/aðstandendur mæta eða heyra í símleiðis. Heilbrigðisritari er í nánu sambandi við sjúklinga og aðstandendur í daglegum störfum sínum. Heilbrigðisritarar taka daglega á móti sjúklingum, sem leita til sjúkrastofnana og heilsugæslu og skrá niður upplýsingar um þá. Nám heilbrigðisritara er viðurkennt nám. Félag heilbrigðisritara heldur uppi öflugri símenntum sinna félagsmanna í samvinnu við Starfsmennt og LSH. Símenntun stuðlar að framþróun.
Heilbrigðisritarar hafa í mörg ár farið fram á að fá löggildingu á starfsheiti sínu en ekki fengið svör sem skyldi.
Félag heilbrigðisritara ítrekar hér með að það er nauðsynlegt að þessi starfsstétt fái löggildingu og viðurkenningu frá hinu opinbera. Enda er það í samræmi við 1. gr. laganna þar sem segir: „Markmið laga þessara er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra.“
Umsögnin var send til ráðherra heilbrigðismála, Guðbjarts Hannessonar, og Heilbrigðisnefndar alþingis.










