Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir heilbrigðisritarar

14. júní 2011

Haustferð suður með sjó

Hvalsneskirkja
Mynd: Binna Gumm, Hvalneskirkja byggð 1887, ein af fáu steinkirkjum landsins.

Ferðaáætlun: Lagt af stað laugardaginn 10. september frá A. Hansen í Hafnarfirði um kl. 14:15 og ekið til Sandgerðis. Þar mun Reynir Sveinsson, leiðsögumaður, hoppa upp í rútuna og verður ekið í um klukkustund undir leiðsögn hans suður að Hvalsneskirkju, kirkjan skoðuð, saga hennar sögð og einnig sagt frá veru Séra Hallgríms Péturssonar þar.

Síðan verður ekið að Stafnesi en þar voru mikil sjóslys fyrr á öldum. Á leiðinni til baka í Sandgerði verða sagðar sannar og léttar sögur í bland á leiðinni. Ef tími gefst til verður litið inn í Fræðasetrið, kostar kr. 600 á mann.    
Ferðinni lýkur með sameiginlegu borðhaldi um kl: 17:30 á veitingastaðnum A Hansen í Hafnarfirði.

Kostnaður kr. 2.500.-, mismunur niðurgreiddur af félaginu.
Innifalið í ferðinni er rútan, leiðsögnin og aðalréttur á tilboðsmatseðli A Hansen.

Takið daginn frá og skráið ykkur með því að senda tölvupóst á sigridas@landspitali.is eigi síðar en 1. ágúst nk.


Þú ert gestur nr. 15559 á vef Félags íslenskra heilbrigðisritara síðan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English