Fréttir heilbrigðisritarar
13. september 2011
Velheppnuð haustferð suður með sjó
Þann 10. september sl. fór Félag heilbrigðisritara í haustferð suður með sjó og var lagt af stað frá Hafnarfirði með rútu kl 14:30. Ferðin heppnaðist þvílíkt vel. Veðrið var frábært og Reynir Sveinsson leiðsögumaður var mjög fróður og skemmtilegur.
Ótrúlegt hvað hægt var að fræðast um lítið bæjarfélag, jafnt um það gamla og það nýja. Kirkjan í Hvalsnesi er með fallegri kirkjum og þar áttum við notalega stund á meðan Reynir sagði frá veru sr. Hallgríms Péturssonar í Hvalsnesi en þar þjónaði hann áður en hann fór að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Einnig var skemmtilegt Gallerý heimsótt þar sem var mikið af fallegum hlutum til sölu. Enda mikið skoðað og keypt.
Ferðin endaði með sameiginlegum kvöldverði en borðað var í Gamla vínhúsinu í Hafnarfirði (áður A.Hansen).
Vel heppnaður dagur að öllu leiti og þökkum við ykkur ferðafélögunum frábæran dag. Ferð sem þessi verður vonandi endurtekinn að ári, þá langar okkur til að sjá enn fleiri koma með en 26 konur voru með í þessari ferð.
Það fara myndir inn á heimasíðuna í vikunni. Endilega að skoða þær.
Hlökkum til að sjá ykkur á októberfundinum, þann 17.okt, kl. 19:30 en þá kemur Áslaug Kristjánsdóttir geðhjúkrunar-og kynlífsfræðingur með erindi til okkar.










