Beint á leiđarkerfi vefsins

Til félagsmanna heilbrigđisritara

5. janúar 2012

Skráning hafin á starfslokanámskeiđ BSRB

Starfslokanámskeið BSRB verður haldið 31. jan. og 2. feb. næstkomandi. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hér.

28. desember 2011

Jólaball SFR 29. desember

jolasveinnjolaball
Jólaball SFR verður haldið í samstarfi við St.Rv. fim. 29. des. 2011, kl. 17 í Gullhömrum, Grafarholti. Miðar eru seldir á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89, opið 9-16. Miðaverð er 700 kr.

13. október 2011

1, 2, 3 og BINGÓ

Laugardaginn 15. október kl. 14 verður Bingó fyrir alla félagsmenn SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að Grettisgötu 89 á 1 hæð. Glæsilegir vinningar - allir geta spilað. Öll fjölskyldan velkomin meðan húsrúm leyfir. Spjaldið kostar 250 krónur.

5. október 2011

Ferđ til fjár - nokkur pláss laus á námskeiđ um fjármálalćsi

Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, heldur námskeið 17. og 24. okt. kl. 17-190 um fjármálalæsi þar sem hann fer í saumana á fjármálum einstaklinga og fjallar um peninga, sparnað og eyðslu á mannamáli. Tekin verða raunveruleg dæmi og þátttakendum kynnt tól og tæki til efla fjárhagslegt öryggi sitt. Skrá mig hér til þátttöku.

19. apríl 2011

Muniđ afsláttarkjör!

Félagsmenn SFR geta fengið afslátt á margs konar vörum og þjónustu og nýlega bættist Prentlausnir.is við listann en þar er hægt að kaupa rekstrarvörur í prentara og ljósritunarvélar meðal annars umhverfisvænu tónerhylkin Grænagerðin.

14. apríl 2011

10 heppnir vinningshafar - Stofnun ársins 2011

Dregnir voru út 10 vinningar sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hver, og komu vinningar á eftirfarandi númer; 3355,  5543,  9232,  13778,  13780,  32551,  52082,  64379,  64666,  69496.

12. apríl 2011

Vinnuferđ í Vađnes

Á þessu vori verður SFR með vinnuferð í Vaðnes þann 13.-15. maí. Þar koma saman félagsmenn til að endurnýja ýmislegt og dytta að í húsunum, klippa tré, tína rusl á svæðinu o.fl. Skráning hjá Önnu Dóru, á netfanginu dora@sfr.is, sem allra fyrst.

24. febrúar 2011

Sumarúthlutun - umsóknarfrestur til og međ 23. mars

Orlofsblað SFR er í vinnslu og er stefnt að því að það berist félagsmönnum fyrir lok næstu viku. Umsóknir verða komnar inn á vefinn um leið og orlofsblaðið berst inn um póstlúguna, en hægt verður að sækja um til og með 23. mars. Opnað verður fyrir bókanir í útlöndum 11. mars og fyrir dagleigu 1. apríl.

14. febrúar 2011

Afslćttir til félagsmanna 2011-2013 og nýtt félagsskírteini

SFR félagar njóta afsláttarkjara hjá fjölmörgum fyrirtækjum gegn framvísun félagsskírteinis sem ætti að hafa borist í síðustu viku. Hér má nálgast yfirlit yfir afslætti 2011-2013. En á tveggja ára fresti semur félagið við viðkomandi fyrirtæki fyrir hönd félagsmanna.

31. janúar 2011

Breytt úthlutunartímabil orlofshúsa

Breyting verður á úthlutunartímabila orlofshúsa í sumar. Úthlutað verður frá 27. maí til 2. sep., en það er 2 vikum skemur en áður. Breytingin er vegna þess að tvær fyrstu vikur sumars voru ekkert sérstaklega vinsælar. Þriðjudaginn 1. feb. mun orlofsvefurinn opna fyrir bókanir fyrir tímabilið fram til 27. maí og þá gildir reglan, fyrstur bókar fyrstur fær. Dagarnir í kringum páska (20.-27. apríl) eru þó undanskyldir, því þeim er úthlutað í sérstakri páskaúthlutun sem kynnt er í SFR blaðinu sem berst félagsmönnum á næstu dögum.


Ţú ert gestur nr. 15559 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré English