Um félagiđ
Félag heilbrigðisritara er fagfélag sem stofnað var 31. maí 2005. Félagið stendur fyrir opnum fundum fyrir félagsmenn og vinnur að bættum hagsmunum þeirra, bæði hvað varða menntun og kjör.
Störf heilbrigðisritara
Heilbrigisritarar hafa starfað á heilbrigðisstofnunum um árabil. Störf þeirra eru fjölbreytt og hafa að mestu leyti þróast á vettvangi í takt við þarfir stofnana. Heilbrigðisritarar eru meðal annars sú starfsstétt heilbrigðisstofnana sem viðskiptavinur mætir fyrst. Þeir starfa við sjúklingamóttöku og sinna ýmiss konar skráningu gagna. Þeir aðstoða við sjúklingabókhald, við innkallanir af biðlistum, taka þátt í skráningu á viðveru starfsmanna, taka á móti pósti og flokka hann, panta ýmsar rannsóknir og þjónustu fyrir sjúklinga, faxa, ljósrita og eyða gögnum, halda gögnum sjúklinga til haga á deildum, halda utan um reglubundna skráningu á atvikum sem tengjast deild, panta sérhæfðar vörur af lager, ásamt því að panta skrifstofuvörur, eyðublöð og fleira eftir þörfum auk ýmissar tölvuvinnu.
Fastir liðir í félagsstarfinu
- Fjóri opnir fundir fyrir félagsmenn á hverju ári, þar á meðal aðalfundur haldinn í apríl.
- Stjórnarfundir haldnir reglulega.
- Kynningar á félaginu fyrir nemendur á heilbrigðisritarabraut (BRÚ) í Fjölbrautaskólanum í Ármúla.
- Kynningar í samvinnu við Landspítalann á starfi heilbrigðisritara fyrir dagskólanemendur á heilbrigðisritarabaut Fjölbrautaskólans í Ármúla.
- Fulltrúar stjórnar mæta við útskriftir frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og færa nemendum blóm frá FHR, auk þess að færa nemanda sem hefur sýnt færni í félagslegum samskiptum í náminu gjöf. Gefnar hafa verið glermyndir. Nú síðast eftir félagskonu Guðrúnu Erlu Sigurðardóttur.
Stjórnin hefur heimsótt starfsmannastjóra LSH og heilsugæslunnar, skrifað Lúðvíki Ólafssyni lækningaforstjóra heilsugæslunnar og Önnu Stefánsdóttur hjúkrunarforstjóra Landspítala til að kynna félagið og námið.
Formaður FHR hefur setið í nefnd við gerð nýrrar námskrár fyrir heilbrigðisritara sem byrjað verður að kenna eftir á næstu önn, haustið 2008.
Trúnaðarmaður SFR fyrir hönd Félags heilbrigðisritara er Ingibjörg Sigurvinsdóttir, LSH Hringbraut.
Fulltrúi Félags heilbrigðisritara í launamálaráði er Sigurrós Gunnarsdóttir, LSH Fossvogi.
Fyrsta mánudag hvers mánaðar mun stjórnarkona vera við á 4.hæðinni á Grettisgötu 89.










